Í maí mánuði fóru notendur Keldu appsins yfir 13.000.
Með Keldu appinu (App store, Play store) geta notendur fylgst með gengi hlutabréfa og gjaldmiðla í rauntíma. Appið er frítt og kemur með 15 mínútna töf á markaðsupplýsingum en hægt er að kaupa rauntímaáskrift með “in-app purchase”.
Með rauntímaáskrift fylgir einnig hlutabréfavakt sem sendir tilkynningar þegar hlutabréf hækka eða lækka mikið í verði.
Við hjá Keldunni fögnum þessum áfanga og auknum áhuga fólks á fjármálum og viðskiptum.
